PEHD 1000
PEHD 1000 (ultrahöymolekylær, polyetylen high den- sity) er hágæða plast sem formað er með hita og er harðast af öllum polyetylen gerðum.
Efnið er þekkt fyrir styrk, togþol, hitaþolni, lítið viðnám við önnur efni (hált), litla Þyngd og vatnsfælni. Þessir eiginleikar gera efnið m.a. vinsælt í efnaiðnaði.
Efnið er seigt og gott til vinnslu en þó erfitt að forma með hita og ekki er hægt að líma eða sjóða efnið. PEHD 1000 er til í plötum og ö x lum.
Algengast er að nota efnið í rennsliplötur, rennsli- skinnur, fóðringar og stýringar.
Í matvælaiðnaði og ölgerðum hefur það verið notað í vélarhluta og í efnaiðnaði í síuplötur og dæluhluta.
EFNISEIGINLEIKAR PEHD-1000
PEHD 500
PEHD 500 er hágæðaplast sem er harðara en venjulegt PEHD. Efnið er þekkt fyrir styrk og mikið togþol við lágt hitastig. PEHD 500 hefur mjög litla vatns- drægni og auðvelt er að vinna úr efninu. Efnið er auðvelt að þrífa og er viðurkennt í matvæla- iðnaðinum. Efnið er til í plötum sem henta t.d. vel í skurðarbretti. PEHD 500 er seigt og hægt að forma með hita. Ekki er hægt að líma efnið en hægt er að sjóða það.
Algengasta notkun er í skurðarbretti, rörstafi í mat- vælaiðnaði, hlífðarplötur í íshokkí og slit-
skinnur á skíði og meisa.
